Besta leiðin til þess að útskýra aðferðafræði félagsvísinda er að nota þau hugtök sem félagsvísindamenn nota sjálfir til þess að fjalla um rannsóknir sínar.
Annars vegar er um að ræða hugtök sem lýsa hvaða grundvallarnálgun býr að baki mismunandi rannsóknaraðferðum. Helst ber að nefna skiptingu í megindlegar (e. quantitative) og eigindlegar (e. qualitative) aðferðir. Munurinn á þessum aðferðum endurspeglar bæði mun á því hvernig félagsvísindafólk nálgast viðfangsefni sitt og ólík markmið rannsókna í félagsvísindum. Hins vegar er um að ræða ýmis hugtök um hvernig gera skuli rannsóknir, svo sem hönnun mælitækja og framkvæmd úrtakskannanna. Hugtökin gera fræðimenn líka meðvitaða um vandamál sem upp geta komið við gagnasöfnun, úrvinnslu og túlkun niðurstaðna. Í framhaldinu verður fjallað stuttlega um skiptingu aðferða í megindlegar og eigindlegar en umfjöllun um sérhæfðari málefni látin bíða betri tíma.
Með megindlegum aðferðum er í grundvallaratriðum átt við að rannsóknaraðferðum náttúruvísinda er beitt á viðfangsefni félagsvísinda. Litið er svo á að félagslegan veruleika megi skoða með því að mæla hann og magnbinda, eða skrá með tölum. Franski félagsfræðingurinn Emile Durkheim (1858-1917) var einn sá fyrsti til að færa rök fyrir því að svona aðferðafræði skyldi beitt í félagsvísindum. Í riti sínu Reglum um félagsfræðilega aðferð (fr. Les régles de la méthode sociologique), sem út kom árið 1895, hélt Durkheim því fram að hægt væri að rannsaka félagsleg viðfangsefni á hlutlægan hátt eins og um efnislega hluti væri að ræða. Félagsvísindafólk ætti að finna lögmál félagslegra fyrirbæra á sama hátt og náttúruvísindin uppgötvuðu lögmál á sviði eðlisfræði, efnafræði og líffræði. Þannig bæri að stefna að því að setja fram almennar kenningar og tilgátur um tengsl félagslegra fyrirbæra, afla reynslugagna um þau og beita tölulegum samanburði til að prófa tilgátur.
Eigindlegar rannsóknaraðferðir má aftur á móti rekja til hugmynda og kenninga (til dæmis hughyggju, fyrirbærafræði og samskiptakenninga) þar sem áhersla er lögð á að einstaklingurinn sé virkur túlkandi veruleikans. Því er aðeins hægt að útskýra athafnir fólks með því að afla gagna um hvaða merkingu það leggur í aðstæður sínar og reynslu. Ennfremur er félagslegur veruleiki óstöðugur og túlkun háð síbreytilegu samhengi og samskiptaferlum. Eigindlegar rannsóknir beinast að því að afla gagna um það hvernig fólk túlkar umhverfi sitt og aðstæður. Þetta er gert með því að fylgjast með fólki í daglegu umhverfi þess og taka viðtöl þar sem spurningar og svör eru ekki á stöðluðu formi heldur miða að því að fá viðmælanda til að lýsa reynslu sinni og upplifun. Útkoma svona rannsókna er ekki tölulegur samanburður heldur hugtök eða þemu sem lýsa hvað er sameiginlegt með reynslu eða upplifun mismunandi hópa og einstaklinga.
Óhætt er að segja að megindlega nálgunin hafi verið meira áberandi í flestum greinum félagsvísinda síðan í byrjun tuttugustu aldar; þær rannsóknir eru orðnar útbreiddastar sem hafa að markmiði að mæla og bera saman athafnir, viðhorf og einkenni einstaklinga og hópa með tölulegum hætti. Af þeim má nefna spurningalistakannanir, tilraunir, innihaldsgreiningu auglýsinga og frétta og notkun lýðtalna á borð við þær sem finna má á Hagstofu Íslands. Eigindlegar aðferðir á borð við viðtalsrannsóknir, þátttökuathuganir og notkun rýnihópa eru þó töluvert mikið notaðar, einkum í rannsóknum á jaðar- og minnihlutahópum og svo auðvitað í mannfræðilegum rannsóknum á framandi menningarheimum. Þótt oft hafi ríkt átök milli fræðimanna um ágæti megindlegra rannsóknaraðferða umfram eigindlegar, og öfugt, eru margir nú á þeirri skoðun að nota þurfi báðar aðferðir til þess að byggja upp heildstæða þekkingu á sviði félagsvísinda.
Heimild: Jón Gunnar Bernburg. „Hvernig útskýrir maður aðferðafræði félagsvísinda?“. Vísindavefurinn 21.11.2005. http://visindavefur.is/?id=5420. (Skoðað 29.10.2009).
