Sýnir færslur með efnisorðinu factor analysis. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu factor analysis. Sýna allar færslur

31.10.09

Þáttagreining

Þjóðarspegill Háskóla Íslands var haldinn í tíunda sinn í gær, 30. október 2009 í Háskóla Íslands. Að venju voru allir fyrirlestrar opnir og var áhersla á að miðla rannsóknum til almennings.

Á meðal fyrirlesara á þjóðarspeglinum í gær var Sigrún Sveinbjörnsdóttir (að ég held) Ph.D. í sálfræði. Í fyrirlestri sínum fjallaði hún um þáttagreiningu (e. Factor Analysis).

Hvað er þáttagreining?

Þáttagreining er leið til að greina/finna/afhjúpa undirliggjandi "þætti"

Þáttagreining er eitt öflugri tölfræðitækja sem félags-og hagvísindin búa yfir. Það gilda þó sömu lögmál um þáttagreininguna og önnur öflug tæki; vanda þarf vel til verka - sé illa að staðið þá getur allt farið "norður og niður".

Fram kemur í kennsluglærum á vefnum frá Rögnu B. Garðarsdóttur að þáttur sé

  • samansafn nokkurra breyta sem mæla sömu hugsmíð.
  • Hugsmíð gæti verið einhver eiginleiki, viðhorf, skoðun, hegðun.
  • Þættir eru samansafn breyta sem hafa háa FYLGNI (correlation) hver við aðra.
  • Factor stundum líka nefnt latent variable eða undirliggjandi breyta.
  • Breytur sem mynda factorinn eru þá observed variables eða raunbreytur

Einnig svarar hún spurningunni "Hvers vegna að þáttagreina?" á eftirfarandi hátt:

  • Til að smækka gagnasafn og gera það þjálla í meðförum.
  • Flokka saman breytur sem eiga saman og greina þær frá öðrum. -“Taka til” í gögnunum
  • Eru breytur að mæla sömu (svipaða) hugsmíð.

Heimild: Ragna B. garðarsdóttir, Spurningakannanir 10.09.64: Þáttagreining - Factor Analysis. Sótt af vef 31. október 2009, slóð www3.hi.is~eoa1/Kvaroagero_1.ppt